Vel sótt rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar

Vegagerðin stóð fyrir ráðstefnu á dögunum undir yfirskriftinni Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar. Þetta var í 18. sinn sem þessi ráðstefna er haldin og var hún vel sótt og mörg áhugaverð erindi flutt. Á ráðstefnunni voru kynnt  17 rannsóknaverkefni sem er þó bara hluti þeirra verkefna sem er í gangi hjá Vegagerðinni hverju sinni.

Fram kom í setningarræðu Bergþóru Þorkelsdóttur, forstjóra Vegagerðarinnar, að styrkur rannsóknarsjóðs Vegagerðarinnar hefur legið í því að styrkja verkefni á mjög breiðu fræðasviði þar sem ekki er endilega einblínt á hefðbundna vegagerð. Verkefnin falla þó undir fjóra almenna flokka en þeir eru: mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag. Af þessari upptalningu má sjá að hægt er að sækja um nánast hvaða rannsóknaverkefni sem er. Það hefur leitt til þessa mikla fjölbreytileika. Segja má að afrakstur verkefna rannsóknarsjóðs sé annar stóri þátturinn í endurmenntun og nýsköpun stofnunarinnar  meðan hinn er fjölþætt erlend samvinna.“

Fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni að ágrip og glærur frá flestum erindum má finna á vefsíðu ráðstefnunnar og þar er líka að finna fjölda mynda frá henni. Áhugi á ráðstefnunni er alla jafna mikill en nú skráðu sig um 220 manns ráðstefnuna..
Erindin voru að vanda mjög fjölbreytt og víða komið við, má nefna nokkur erindi sem snúa að umferðaröryggi og önnur sem snúa að umhverfi, s.s. svifryki. 

Nánari upplýsingar um hvert og eitt erindi auk fjölda mynda, má nálgast á síðu ráðstefnunnar.