Vörðum leiðina saman - íbúum í öllum landshlutum boðið til opins samráðs

Innviðaráðuneytið, í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga, býður íbúum í öllum landshlutum til opins samráðs á fjarfundum í október undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman.

Tilgangur samráðsfundanna er að gefa íbúum landsins og sveitarstjórnarfólki um land allt tækifæri til að hafa áhrif á stefnumótun í nokkrum helstu málaflokkum ráðuneytisins. Á fjarfundunum verður kastljósinu beint að framtíðaráskorunum í málaflokkunum. Meginviðfangsefni fundanna verða umræður um stefnumótun í samgöngum og fleiri þáttum.

Öllum er velkomið að taka þátt í fjarfundunum milli kl. 15:00–17:00 á auglýstum fundardögum. Fundirnir verða haldnir í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams. Hægt er að skrá sig á vef fundaraðarinnar. Þátttakendur fá síðan boð í tölvupósti til að tengja sig á fundina. Skráningu lýkur daginn fyrir hvern fund. 

Fundardagar: 

  • 10. október – Höfuðborgarsvæðið
  • 11. október – Suðurland
  • 18. október – Austurland
  • 19. október – Norðurland eystra
  • 20. október – Norðurland vestra
  • 24. október – Vestfirðir
  • 26. október – Vesturland
  • 27. október – Suðurnes