Fréttir

Jörðin, víst er hún flöt!

Sverrir Bollason formaður klofna tveggja manna starfshópsins sem á dögunum kannaði m.a. kosti þess og galla að lækka hámarkshraðamörk á Hringbraut og Miklubraut vestan Kringlumýrarbrautar var í viðtali um málið í síðdegisútvarpi Rásar 2 í gær. Sverrir er talsmaður þess að lækka hraðamörkin og færði ýmis sjónarmið og rök fyrir því í útvarpsþættinum, sum hver nokkuð sérkennileg.

Bíll knúinn áfram af saltupplausn?

Bílafyrirtæki í Lichtenstein sem heitir NanoFlowcell viðraði framtíðarhugmynd sína um saltknúinn bíl á bílasýningunni í Genf í fyrra. Á sýningunni sem nú er framundan mun fyrirtækið sýna nýjustu birtingarmynd ,,saltbílsins,“ sportbílinn Quant 48Volt.

Euro NCAP hefur skilað okkur öruggari bílum

Það er enginn vafi á því að Euro NCAP hefur skilað almenningu miklu sterkari og öruggari bílum en annars hefði orðið og jafnframt stuðlað að miklu hraðari þróun hverskonar virks öryggisbúnaðar eins og loftpúða, læsivarðra hemla, skrikvarnarbúnaðar, sjálfvirkrar neyðarhemlunar o.fl og að slíkur búnaður einskorðist ekki við dýrustu lúxusbílana eins og áður var, heldur sé staðalbúnaður í öllum bílum hins venjulega fólks.

Euro NCAP 20 ára – tímamót í sögu umferðaröryggis

Fyrstu árekstrarpróf Euro NCAP voru framkvæmd í þessari viku fyrir 20 árum síðan. Á þessum 20 árum hefur Euro NCAP gefið út og birt yfir 630 öryggisúttektir, árekstrarprófað um 1.800 bíla. Samanlagt hefur verið varið yfir 160 milljónum Evra í verkefnið með það að markmiði að auka öryggi bifreiða í umferð. Sannanlega hafa öryggisúttektir Euro NCAP stóraukið öryggi vegfarenda og áætlað er að yfir 78.000 mannslíf hafi bjargast vegna öryggisþróunar ökutækja á liðnum 20 árum.

Jeep og Fiat ekki lengur munaðarlausir á Íslandi

Einn vinsælasti jeppinn á Íslandi um langt árabíl er Jeep. Það hefur hann verið þrátt að enginn formlegur innflytjandi og þjónustuaðili hafi fyrirfundist. Nú hefur orðin breyting á. Fjölskyldufyrirtækið Ísband í Mosfellsbæ hefur gert samstarfssamning við framleiðandann Fiat Chrysler Automobile (FCA) um innflutning og sölu á Jeep, Fiat, Chryslerbílum, þjónustu við bílana og eigendur þeirra.

Umhverfis og skipulagsráð hyggst ótrautt lækka hraðamörk á þjóðvegunum vestan Kringlumýrarmýrarbrautar

Meirihluti ,,ráðsmanna“ í um­hverf­is- og skipu­lags­ráði Reykjavíkur samþykkti í gær áætlun tveggja manna starfshóps ráðsins um að lækka hámarkshraða á Sæbraut, Miklubraut og Hringbraut vestan Kringlumýrarbrautar. Meirihluti ráðsins felldi jafnframt tillögu um að leitað yrði umsagnar Vegagerðar, Samgöngustofu og lögreglu áður en skýrsla starfshópsins fyrrnefnda yrði endanlega afgreidd. Sæbrautin, Miklabrautin og Hringbrautin eru þjóðvegir og því í forsjá Vegagerðarinnar.

Kínverjar eignast 22% í Valmet í Finnlandi

Kínverski rafhlöðuframleiðandinn CATL (Contemporary Amperex Technology Limited) hefur keypt 22 prósent hlut í finnsku bila- og traktoraverksmiðjunni Valmet. Tilgangurinn með kaupunum er að ná traustri fótfestu og forystu á Evrópskum rafbílamarkaði í framleiðslu og sölu bæði rafbíla, rafhlöðupakka og drifbúnaðar fyrir rafbíla.

Söluhæsti bíll heimsins 2016 - Toyota Corolla

Toyota Corolla er lang vinsælasta bílategundin í heiminum þessi árin. Síðasta ár seldust rúmlega 1,3 milljón Corollur. Það þýðir að sérhvern dag ársins að frí- og helgidögum meðtöldum, tóku að meðaltali 3.597 kaupendur við nýjum Corolla bílum.