Fréttir

Dómstóll í Karlsruhe skikkar Volkswagen að greiða bætur

Þýski ríkisdómstóllinn í borginni Karlsruhe komst að þeirri niðurstöðu í dag að þýski bílaframleiðandinn skildi greiða eigendum dísilbíla frá fyrirtækinu bætur.

Ekki mælt með því að hjólað sé á akbrautum með mikilli og hraðri umferð

Að undanförnu hafa ökumenn tekið eftir því að reiðahjólafólk hjóli í meira mæli á vegunum. Um helgina var vart við reiðhjólafólk á Þingvallavegi og á Reykjanesbraut svo eitthvað sé nefnt. Reiðahjólafólk var ýmist eitt, hjólaði samhliða og var í hópum. Mörgum ökumönnum þótti þetta í sumum tilfellum óþægilegt og beinlínis varasamt.

Fjóra daga tók að berjast í gegnum þykkt stálið

Vegurinn inn í Mjóafjörð hefur verið opnaður. Fjóra daga tók að berjast í gegnum þykkt stálið sem safnast hafði upp í vetur en sums staðar var það rúmir fimm metrar á hæð. Vegurinn yfir Mjóafjarðarheiði hefur verið meira og minna lokaður síðan í október.

Hönnunarstjóri KIA telur að fjölnotabílar komi sterkir inn aftur

Karim Habib var ráðinn hönnunarstjóri Kia í Kóreu á liðnu hausti en hann starfaði áður sem hönnunarstjóri BMW í nokkur ár og síðast í sama starfi fyrir Infiniti lúxusbílamerki Nissan í Japan. Karim ræddi nýlega við sænsku útgáfunni af Auto Motor & Sport um þróun nýrra bíla og framtíðina hjá Kia. Hér á eftir fer stutt samantekt á því sem Karim sagði.

Nokkur atriði sem er gott að hafa í huga vegna eftirvagna

Allt virðist stefna í eitt stærsta ferðasumar hér á landi í langan tíma en sala á tjöldum, tjaldvögnum, fellihýsum og hjólhýsum hefur sjaldan verið meiri. En áður en farið er af stað er mikilvægt að kynna sér vel ástand bílsins og ekki síður ástandið á eftirvagninum. Oft á tíðum hafa vagnarnir staðið við misjafnar aðstæður í marga mánuði og síðan skellt aftan í bílinn og haldið af stað. Hér verður stiklað á nokkur mikilvæg atriði sem er gott að hafa í huga áður lagt er af stað.

Renault sækir um aðstoð í rekstrarvanda

Bílaframleiðendur eiga við mikinn rekstrarvanda að stríða um þessar mundir sökum kórónaveirufaraldursins. Samdráttur í sölu nýrra bíla er mikill og alveg ljóst að bílaframleiðendur verða í langan tíma að rétta úr kútnum.

Reglugerð sem heimilar stafræn ökuskírteini í samráðsgátt

Útgáfa stafrænna ökuskírteina verður heimiluð samkvæmt drögum að breytingum á reglugerð um ökuskírteini sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila umsögn er til og með 25. maí nk.

Standa þarf rétt að málum þegar gefa á start

Eftir því sem bílar verða fjölbreytanlegri verður öðruvísi að gefa eða þiggja start en það var áður, sumt má og annað ekki. Bílar eru flóknari og þetta er stundum orðinn frumskógur að eiga við. Fyrirspurnir um þetta og því tengdu berast í æ meira mæli inn á skrifstofu FÍB. Þetta var meðal þess sem kom fram í viðtali við Björn Kristjánsson, tæknimann hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.

Heimilt að sækja um endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna viðgerða

Búið er að heimila það að einstaklingar geti sótt um endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna vinnu við viðgerðir á fólksbifreiðum. Mun þetta eingöngu eiga við um vinnulið reikninga en ekki um varahluti og aðra íhluti sem notaðir eru í viðgerðina.

Umferðin smám saman að færast í fyrra horf

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku, viku 20, er farin að nálgast mjög þá umferð sem var í sömu viku fyrir ári síðan og virðist því sem rýmkun á samkomubanni vegna Covid-19 leiði hratt til aukningar á umferðinni frá því hún varð minnst.