Mercedes Benz C-Class 2014

 

Nýi C-Benzinn er talsvert laglegri en fyrirrennarinn. Útlitið er fágað og tignarlegt; langt húdd og stutt skott gefa til kynna sportlegt yfirbragð. Innréttingin er hreint út sagt stórkostleg og frábær staður til að verja tíma sínum. Pláss fyrir farþega í aftursætum er þó af skornum skammti, sérstaklega fyrir þá sem eru rétt yfir meðalhæð, enað að öðru leyti bærilegt. Afþreyingakerfi bílsins er heldur svifaseint og flókið, sérstaklega þegar tekið mið af því að markhópur bílsins er fólk á miðjum aldri með lítinn tækniþorsta. Með þolinmæðina að vopni verður kerfið þó sífellt skilvirkara.

Reynsluakstursbíllinn var drekkhlaðinn aukabúnaði og „sjálflagningarbúnaði“. Radarstýrði hraðastillirinn (e.radar-guided cruise control) virkar þannig að ef bíllinn fyrir framan hægir á sér, þá hægir bíllinn þinn sjálfkrafa á sér og herðir aftur á sér þekar hinn bíllinn gerir það sama. Lagningarbúnaðurinn (e.Park Assist) virkar þannig að skynjarar í bílnum skanna bílastæði og láta ökumann vita ef slíkt er fundið. Þá er einungis þrýst á einn takka og bíllinn stýrir sér sjálfur í stæðið. Þó þarf ökumaður að stýra inngjöf og bremsu.

Umræddur bíll var af gerðinni C220 BlueTEC með 2.1 lítra dísilvél sem skilaði 170 hestöflum. Veg- og vindhljóð voru í algjöru lágmarki og auðveldlega hægt að halda uppi samræðum án þess að hækka róminn á mikilli ferð. Eldsneytiseyðsla reyndist rétt rúmir 6 lítrar á hundraðið. Þótt bíllinn tækli beygjur af mikilli færni, var í raun ekki þörf á meira afli. Helst langar mann bara að dóla á þjóðveginum og njóta þess að sitja í mjúkum leðurstólnum     -RMR