Fréttir

Fjármunir í danska vegakerfið ekki nýttir þar sem þörf er á

Sveitarfélögin nota ekki þá fjármuni í danska vegakerfið þar sem þörf er á. Það er dýr sparnaður þegar upp er staðið og það eiga ökumenn og skattgreiðendur að hafa í huga fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar að því er fram kemur á FDM vef Félags danskra bifreiðaeigenda.

PEth-próf: Nýjar kröfur vegna sviptingar ökuskírteinis í Svíþjóð

Það á ekki lengur að nægja að tvö svokölluð PEth-próf sýni neyslu áfengis til þess að ökumaður missi ökuskírteinið, að sögn sænsku Umferðarstofunnar (Transportstyrelsen). Margir ökumenn hafa misst ökuskírteini sín eftir að hafa gengist undir svokölluð PEth-próf. Þau eiga að mæla hversu mikið áfengi einstaklingur hefur neytt en prófin hafa sætt harðri gagnrýni.

Forseti FIA í heimsókn á Íslandi

Mohammed Ahmad Sultan Ben Sulayem, forseti FIA, heimssamtaka bifreiðaeigendafélaga og bílaíþróttafélaga kom í stutta heimsókn til Íslands á dögunum. Auk þess að heimsækja höfuðstöðvar FÍB í Skúlagötu 19 átti Ben Sulayem fund með forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, stjórn FÍB og forystumönnum Landssambands íslenskra akstursíþróttafélaga.

Hvað er AdBlue og hvernig virkar það?

Hvað gerir AdBlue? AdBlue er efni sem er hannað til að minnka umhverfisskaðann sem hlýst af útblæstri bifreiða og aukin notkun dregur úr skaðlegum útblæstri. AdBlue er vökvi sem notaður er í nútíma dísilbíla til að draga úr mengandi köfnunarefnissamböndum (NOx) í útblæstri. Þetta er litlaust og eiturefnalaust efni úr eimuðu vatni (67,5%) og hreinu þvagefni, urea (32,5%) . Það hefur verið skylda að nota AdBlue í öllum nýjum dísilbílum frá 2015 í samræmi við Euro 6 mengunar staðalinn.

Fjórir fyrrverandi stjórnendur Volkswagen sakfelldir

Þýskur dómstóll hefur sakfellt fjóra fyrrverandi stjórnendur Volkswagen fyrir svik og dæmt tvo þeirra í fangelsi fyrir þátt þeirra í útblásturshneykslinu sem kom upp fyrir tæpum áratug.

Nýr Hongqi EHS7 Premium – lyklalaust aðgengi með raddstýringu

Nýr, fjórhjóladrifinn og alrafmagnaður sportjeppi, Hongqi EHS7 Premium, var kynntur í höfuðstöðvum BL við Sævarhöfða um liðna helgi.Þessi nýi sportjeppi býður upp á allt að 460 km drægni, er með 619 hestafla rafmótor og 85 kWh rafhlöðu. Hröðun úr kyrrstöðu er einungis 3,9 sek./klst. og dráttargetan eitt og hálft tonn auk þess sem bíllinn er búinn varmadælu sem nýtist vel yfir vetrartímann.

Niðurskurður hjá Volvo Cars – 3.000 stöður hverfa

Volvo Cars hefur kynnt sparnaðaráætlun upp á 18 milljarða sænskra króna sem samsvarar um 240 milljörðum íslenskra króna. Þetta felur í sé fækkun starfsfólks og nú er ljóst hversu margar stöður munu hverfa.

Byrjað á hringtorgi við bæjarmörkin á Akureyri

Framkvæmdir hófust fyrir nokkru við gerð hringtorgs við sveitarfélagamörk Akureyrar og Hörgársveitar, á gatnamótum Hringvegar (þjóðvegar 1) og Lónsvegar. Reiknað er með að þær standi fram í nóvember og munu þær hafa umtalsvert rask í för með sér að því er fram kemur á akureyri.net

Kallað eftir því að styrking krónunnar og lækkun á heimsmarkaði á olíu skili sér til íslenskra neytenda

Lækkun olíuverðs á heimsmarkaði koma seint og illa fram á Íslandi. Seðlabankastjóri hefur einnig kallað eftir því að styrking krónunnar og lækkun heimsmarkaðsverðs á olíu skili sér til íslenskra neytenda. Þetta kom fram í umfjöllun um málið í kvöldfréttum RÚV.

Ákveðið neyðarástand ríkir í innviða- og vegakerfinu hérlendis

Ákveðið neyðarástand rík­ir í innviða- og vega­kerfi lands­ins, að mati Run­ólfs Ólafs­son­ar, fram­kvæmda­stjóra Fé­lags ís­lenskra bif­reiðaeig­enda. Hann seg­ir alltof al­gengt að bik­blæðing­ar verði á bæði vet­urna og sumr­in. Hann kall­ar eft­ir því að notað verði mal­bik frek­ar en klæðning á vegi lands­ins.